
Suðurlandsbraut 2
Reykjavík, Ísland 108
S: +354 444-5090
Agnes útskrifaðist árið 2013 með Ms. í íþróttanæringarfræði, þar á undan útskrifaðist hún með Bs. í næringarfræði með undirfag í hreyfingarfræði (kinesiology). Agnes er samþykktur næringarfræðingur frá Embætti Landlæknis og með náminu vann hún í samvinnu við yfirnæringarfræðing Ólympísku æfingarmiðstöðvarinnar í Colorado við næringarráðgjöf og verkefni fyrir æfingarmiðstöðina (Olympic Training Center). Samhliða náminu var hún einnig í starfsþjálfun hjá National Strength and Conditioning Association þar sem hún vann mikið með slökkviliðsmönnum, lögreglumönnum, fangavörðum, sérsveitinni, FBI og hermönnum. Sjálf stundaði Agnes bæði fótbolta og handbolta til ársins 2015.
Agnes leggur mikla áherslu á samspil næringu og þjálfunar og telur samspil þess undirstaða árangurs. Agnes tekur að sér bæði einstaklinga sem vilja ná betri heilsu,auka lífsgæði og afreksíþróttafólk.Sjálf hefur hún mikla reynslu af endurhæfingu eftir hnéaðgerðir sem nýtist henni í þjálfun.
Blængur tók yogakennaranámið sitt hjá YogaWorks í New York árið 2014 og hefur kennt yoga síðan þá.
Blængur kennir Hlýtt Yogaflæði á mánudögum klukkan 17:20-18:35.
Bjartur útskrifaðist árið 2011 frá Háskóla Íslands með Bsc gráðu í íþrótta- og heilsufræði. Hann er einnig menntaður nuddari frá Nuddskóla Íslands og hefur lokið UEFA-B/KSÍ-B knattspyrnu þjálfara gráðu.
Hann hefur starfað í líkams- og heilsurækt síðan 2008 og sérhæfir sig í þjálfunaraðferðum sem stuðla að auknum hámarksstyrk og sprengikraft. Bjartur hefur náð góðum árangri með fólk sem glímir við stoðkerfis vandamál eða þarf að létta sig.
Sólrún María Arnardóttir er útskrifaður jógakennari frá Absolute Yoga Academy (200hrs RYT) og frá Yogabody trapeze teachers college (50hrs RYT). Hún byrjaði að iðka jóga reglulega árið 2010 og hefur síðan þá farið tvisvar í kennaranám í yoga til þess að dýpka þekkingu sína.
Sólrún kennir Hlýtt yoga þar sem farið er í gegnum Fit Flow Fly seríuna frá Bryce . Hún byggist á tveim sólarhyllingum sem leiða síðan inn í krefjandi flæði með áherslu á eftir hluta líkamans. Hápunktur tímans er þegar reynt er við handjafnvægisstöðu dagsins. Því næst er farið í gegnum nokkrar miðsvæðis styrkjandi æfingar, bakbeygjur og endað á róandi teygjum.
Dísa er með The Barkan Method U.S.A, stig II & III kennararéttindi í Hot Yoga, Absolute Yoga Thailand kennararéttindi í Hot Yoga, ásamt því að vera með danskennararéttindi. Hún hefur kennt yoga í sjö ár, þar af fimm ár hjá okkur. Dísa er einnig fagmenntaður ljósmyndari og listfræðinemi við HÍ.
Dísa kennir Hot Yoga Sculped og Hot Yoga.
Þórunn er útskrifaður einkaþjálfari frá ÍAK og hún er með kennarapróf í Fit Pilates. Hún er einnig með kennsluréttindi frá Les Mills í BODY PUMP, CXWORX, GRIT (Strength/Cardio/Plyo) og SH‘BAM ásamt því að hafa sótt Thai-fitnessboxingnámskeið og ketilbjöllunámskeið.
Þórunn hefur gríðarlegan áhuga á næringu og hefur sótt ýmis næringar- og bætiefnanámskeið, hún hefur aflað sér viðtækrar þekkingar í heimi grænmetis- og vegan og hefur sjálf verið grænmetisæta í 30 ár.
Þórunn kennir Fit Pilates, Tabata/Þrek, HIIT og Hot Core ásamt því að starfa í móttökunni í Hilton Reykjavik Spa.