Suðurlandsbraut 2
Reykjavík, Ísland 108
S: +354 444-5090
Heilsulind Hilton Reykjavik Spa býður upp á fjölbreyttar nuddmeðferðir og spa upplifun sem henta bæði körlum og konum.
Stakur aðgangur í Hilton Reykjavík Spa og líkamsrækt er 6.900 kr.
Í heilsulindinni eru tveir heitir pottar, vatnsgufa og slökunarlaug. Úti á veröndinni er einnig heitur pottur, kaldur pottur og sauna ásamt sólbaðsaðstöðu. Aðgangur að staðnum lokar 30 mínútum fyrir auglýstan lokunartíma.
Við seljum léttvín og bjór og heimilum neyslu þess á útisvæði og í forrými. Áfengi er ekki heimilt á innisvæði spa.
VINSAMLEGAST KYNNIÐ YKKUR OPNUNARTÍMA STÖÐVARINNAR OG HAFIÐ Í HUGA AÐ EKKI GEFST TÍMI TIL AÐ FARA Í SPA EFTIR SÍÐUSTU MEÐFERÐIR DAGSINS.
JAFNFRAMT ERU VIÐSKIPTAVINIR BEÐNIR UM AÐ MÆTA TÍMANLEGA Í BÓKAÐAR MEÐFERÐIR ÞAR SEM SEINKUN GETUR HAFT Í FÖR MEÐ SÉR STYTTRI MEÐFERÐARTÍMA OG ÞAR MEÐ SKERTA MEÐFERÐ.
GESTIR ATHUGIÐ !
Heimsókn í SPA þarfnast bókunar. Við viljum að gestir njóti heimsóknarinnar og því er nauðsynlegt að takmarka fjölda í spaið.